Deila tilfinningaþrungnu myndbandi af týnda hundinum Eddie

Chihuahua-hundurinn Eddie hvarf þann 18. desember síðastliðinn þegar hann slapp útaf heimili sínu í Hafnarfirði.

Umfangsmikil leit hefur staðið yfir síðan þar sem fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg bæði dag og nótt.

Eigendur Eddie, Jón Páll Pálmason og Kerry Pálmason, hafa heitið 300 þúsund króna fundarlaunum fyrir hvern þann sem finnur hundinn á lífi. Eddie var í pössun þegar hann hvarf en eigendur hans voru stödd í Bandaríkjunum þegar ógæfan reið yfir.

Í gær birtu eigendurnir síðan tilfinningaþrungið myndband af Eddie í þeim tilgangi að hjálpa öðrum að mynda tengsl við hinn fjórfætta ástvin þeirra.

Í færslu við myndbandið er tekið fram að þetta sé það síðasta sem að eigendurnir vilji gera enda sé hver póstur sársaukafullur. Þakka þau fyrir hetjulegan stuðning samfélagsins undanfarnar þrjár vikur. Tilhugsunin um að þau muni aldrei hitta Eddie aftur sé óbærileg eins og flestir sem hafa elskað dýr geta ímyndað sér.

„Ástkæri litli hundurinn okkar, sem var bjargað frá ólýsandi misnotkun, gaf okkur ást alla leið frá Houston, Texas, til Cleveland, Ohio, og að lokum til Íslands-Ólafsvíkur, Reykjavíkur, og að lokum Hafnarfjöður. Þrátt fyrir erfitt lífur hefur Eddie snert hjörtu margra, og vonandi leiðir það til góðs,“ segja Kerry og Jón Páll.

Myndbandið má sjá hér: