Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra hefur tekist að bæta fyrir klúðrið í sniðgöngumálinu eins og hægt er og engar líkur á að hann hrekist úr embætti þótt staða hans hafi ef till veikst tímabundið.
Þetta kom fram í máli Stefaníu Óskarsdóttur, stjórnmálafræðings og dósents við Háskóla Íslands í samtali við Pál Magnússon í þættinum Þjóðbraut á miðvikudagskvöld, sem hóf þar aftur göngu sína í kvöld að loknu sumarleyfi. Stefanía metur það svo að Dagur hafi bakkað á réttum tíma og beðist afsökunar af þeirri auðmýkt sem þurfti.
Í þættinum ræddi Stefánía óljós valdmörk á milli sveitarstjórna, löggjafar- og framkvæmdavalds, en mjög hefur verið í umræðunni síðustu daga hvort sveitarfélög, þar á meðal borgin, eigi að hlutast til um utanríkismál og þá einnig hvort ráðherrar eigi að skipta sér af skipulagsmálum sem eru lögum samkvæmt á hendi sveitarfélaga.
Þáttinn má nálgast í heild sinni eða í klippum á hringbraut.is.