De gaulle líkleg fyrirmynd ólafs

Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði varpaði fram þeirri spurningu í þætti Ólafanna á Hringbraut á fimmtudagskvöld hvort de Gaulle hershöfðingi og forseti Frakklands hefði verið Ólafi Ragnari Grímssyni að nokkru leyti fyrirmynd í embætti forseta.

Þetta gerði Ólafur með vísan til kennslu Ólafs Ragnars á sínum tíma í Háskóla Íslands um forsetatíð de Gaulle og nýja franska stjórnarskrá, en franski forsetinn var eindreginn þeirrar skoðunar að sterkur forseti gæti eflt sitt embætti með því að reyna vel á ystu mörk þess.

Margir eru einmitt þeirrar skoðunar að það hafi Ólafur Ragnar gert, svo mjög reyndar að forsetaembættið hefur líklega breyst til frambúðar, en almennt virðist fólk vilja að forseti geti beitt 26. grein stjórnarskráinnar og synjað málum staðfestingar þar sem greinileg gjá er á milli vilja þings og þjóðar.

Í mþættinum kom einnig fram að Vigdís Finnbogadóttir vissi vel af málskotsréttinum í sinni forsetatíð og hugleiddi að nota hann í EES-málinu, en mat það líklega þá sem svo, að mati prófessorana, að ekki væri nógu mikill munur á þings- og þjóðarvilja til að grípa inn í þá atburðarás. 

Þáttinn má sjá hér á vef Hringbrautar, en hann er frumsýndur öll fimmtudagskvöld klukkan 21:30 og endursýndur 23:30 á laugardags- og sunnudagskvöldum.