Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, er gestur í Þjóðbraut í kvöld. Rætt verður um ríkisstjórn margra flokka, það er ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á árunum 1998 til 1991. Í þeirri ríkisstjórn voru ráðherrar sem voru mjög fyrirferðarmiklir í stjórnmálum þess tíma.
Frá Alþýðubandalaginu voru ráðherrar; Ólafur Ragnar Grímsson, Svavar Gestsson og Steingrímur J. Sigfússon. Frá Alþýðuflokki voru; Jón Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson og frá Framsóknarflokki voru auk Steingríms Hermannssonar; Halldór Ásgrímsson og Guðmundur Bjarnason.
„Þetta var best mannaða ríkisstjórn lýðveldistímans, nema kannski að fyrsta Viðreisnarstjórnin, með þá Bjarna Benediktsson og Gylfa Þ., hafi verið betur mönnuð,“ segir Jón Baldvin.
Ríkisstjórn Steingríms hélt velli í kosningunum 1991. Jón Baldvin, og Alþýðuflokkurinn, kusu frekar samstarf með Sjálfstæðisflokki, en halda áfram þar sem frá var horfið. Meira að segja þrátt fyrir að Jóni hafi verið boðið að verða forsætisráðherra. Þar með hófst langur valdaferill Davíðs Oddssonar.
Jón segir forráðamenn Framsóknarflokks og Alþýðubandalags hafa svikið sig. Allir hafi unnið að EES-málinu en í kosningunum hafi hinir flokkarnir snúið við því baki og hann hafi því þurft að semja við Davíð um framgang EES.
Jón Baldvin er sagður hafa þarna komið Davíð vil valda. Hann neitar og segir þá sem svikust undan EES bera ábyrgð á Davíð og löngum valdatíma hans.
Sem fyrr segir er Jón Baldvin í viðtali í Þjóðbraut í kvöld. Þátturinn er á dagskrá klukkan 21:00.