Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins uppnefnir samtök launafólks og atvinnurekenda í leiðara blaðsins í dag og telur réttnefni þeirra betur vera skammstafað ELÖG sem standi fyrir "Ekkert lært, öllu gleymt". Ástæða þess að gamla forsætisráðherranum er svona mikið niðri fyrir er að Félag atvinnureknda "og annað félag atvinnurekenda sem er kallað Samtök atvinnulífsins" eins og Davíð kýs að kalla SA, hafi ásamt Viðskiptaráði og Alþýðusambandinu haldið fund í gær um evruna og kynnt þar skýrslu þar sem "pantað var svar" í þá veru að evran muni auka trúverðugleika Íslands.
Davíð heldur stíft á penna í leiðara þessa fyrsta dags apríl og furðar sig á því báða dálkana á enda að svona samtök haldi virkilega að evran geti einhverju bjargað hér á landi, því einungis þurfi að horfa til landa evrunnar þar sem "atvinnuleysi almenns launafólks er 25%."
"Með hliðsjón af þessu fer mjög vel á því að "Félag atvinnurekenda" skuli heita Félag atvinnurekenda. Það færi ekki síður vel á því að félag leigubílstjóra á Húsavík héti Samtök leigubílstjóra á norðurhveli jarðar," skrifar sá formaður Sjálfstæðisflokksins sem lengst hefur setið á stóli forsætisráðherra - og spáir lélegri mætingu á fundum allra þessara samtaka í framtíðinni.