Davíð um rúv: smekklaus aulaháttur!

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins sendir forkólfum Ríkisútvarpsins væna sneið í leiðara dagsins, en útvarpsþátturinn Víðsjá virðist fara verulega í taugarnar á þessum fyrrverandi forsætisráðherra landsins.

Hann kallar umsjármenn þáttarins víðsýna sérvitringa sem kunnir séu af aulahúmor sínum, en í nýlegum þætti var fjallað sérstaklega um guðlega nálgun Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra á erfiðum tíma í efnahagssögu landsmanna. Davíð er ekki skemmt yfir því gisi að Geir: \"Bókmenntaþátturinn Víðsjá fer ósköp vel við Ríkisútvarpið og það andrúmsloft sem þar ríkir innanhúss,\" skrifar hinn lipri penni sem Davíð er. Og heldur áfram: \"Vafalítið fellur hann einnig vel að smekk þess þrönga hóps pólitískra viðhlæjenda sem þáttastjórnendur eru þekktir fyrir að biðla til eða klappa á koll eftir því sem við á.\"

Davíð hefur aldrei hugnast vinstri slagsíða ríkismiðilsins. Og skrifar í dag: \"Það hefur ekki leynt sér að grúppan innan húss og utan er mjög upptekin af því að Geir H. Haarde forsætisráðherra hafi lokið ávarpi sínu til þjóðarinnar á einstökum tíma í sögu hennar með því að biðja Guð að blessa Ísland,\" en pistill eins umsjármanns Víðsjár fjallaði einmitt nýverið um daginn sem Geir sneri sér til æðri máttarvalda. Sjálfhverfan leki af þeim pistli að mati Davíðs: \"... og þarf töluverða tilgerð til að velta sér árum saman upp úr þeim, og eins þegar það er gert með smekklausum aulahætti, að auki í meintum bókmenntaþætti.\"

Davíð rekur svo efni háðspistilsins í leiðara sínum uns hann kvittar fyrir allt saman með þessum hvössu orðum: \"Stofnunin okkar allra, eins og hún kallar sig sjálf, eina stofnun landsins sem rekin er í \"þjóðarþágu\" að sögn löggjafarvaldsins, er söm við sig. Og þjóðin gleðst yfir því að sjá að heitið Víðsjá er ekki lélegra öfugmæli en heitið Fréttastofa er á annarri deild sömu stofnunar.\"