Leiðarahöfundur Morgunblaðsins, sem að líkindum er Davíð Oddsson, tengir í dag hryðjuverkin í París beint við það sem hann kallar „neyðaróp“ sænskra stjórnvalda til ESB um að „hið sænska samfélag sé að niðurlotum komið vegna áhrifa flóttamannastraumsins“. Vitnar leiðarahöfundur í Jyllandsposten máli sínu til staðfestingar.
Þá segir hann að allir hefðbundnir stjórnmálaflokkar í Svíþjóð hafi fram til þessa „lotið kröfum rétttrúnaðarins og forðast að horfast í augu við staðreyndir“.
„Kannski verða einu jákvæðu áhrifin af hinu hryllilega ódæðisverki í París að málfrelsið muni aftur ná til þess að mega ræða hvernig komið er í stærstum hluta Evrópu,“ bætir leiðarahöndur Moggans við.
Verður leiðarinn ekki skilinn með öðrum hætti en að höfundur telji rétt að læsa landamærum hins gamalevrópska heims fyrir flóttafólki.
Leiðarinn hefur einnig vakið spurningar á samfélagsmiðlum í dag hvort höfundur hans telji að raddir óhefðbundinna öfgaflokka séu rétta svarið við auknum fjölda flóttamanna sem reyni að komast burt frá skelfilegum aðstæðum sem í sumum tilvikum megi skýra með yfirgangi vestrænna ríkja. Þannig ræddi Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum utanríkisráðherra, á Sprengisandi um helgina ábyrgð Íslendinga á stöðunni sem komin væri upp með því að Ísland hefði verið á lista viljugra þjóða sem stutt hefðu innrásina í Írak. Geta má þess að sá sem stóð fyrir þeim stuðningi var Davíð Oddsson, í félagi við Halldór Ásgrímsson.