Davíð: „eiga landsmenn að trúa því að rúv hafi fyrir tilviljun verið með vélar sínar í gangi?“

„Hinn 12. nóvember 2018 sendi forsætisráðherra Seðlabankanum bréf eftir að bankinn hafði farið í langa sneypuför gegn Samherja vegna meintra brota sem reyndust ekki hafa átt sér stað. Forsætisráðherra óskaði greinargerðar um afstöðu bankans „eigi síðar en föstudaginn 7. desember nk.“ Sá tímafrestur leið og það var ekki fyrr en 21. febrúar sl. sem svar barst.“

Þetta skrifar Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, í staksteinum blaðsins í dag. Þar veltir hann því fyrir sér af hverju Seðlabanki Íslands hunsi ítrekað rúma tímafresti forsætisráðherra til að svara spurningum vegna Samherjamálsins. Auk þess gefur Davíð lítið fyrir svör Seðlabankans um að hann hafi engin gögn fundið um meintan leka bankans til RÚV með upplýsingum um húsleit í Samherja. En greint var frá því í seinasta mánuði að umboðsmaður Alþingis teldi að tilefni væri til að kalla eftir upplýsingum um hver hlutur starfs­manna gjald­eyris­eftir­lits Seðla­banka Ís­lands var í að upp­lýsa starfs­mann Ríkis­út­varpsins (RÚV) þegar bankinn fram­kvæmdi hús­leit hjá sjávar­út­vegs­fyrir­tækinu Sam­herja árið 2012.Seðlabankinn fann ekki upplýsingar sem benda til að starfsmenn hafi veitt RÚV upplýsingar af neinu tagi eftir að forsætisráðherra óskaði eftir svörum. 

Hann segir: „Hinn 15. mars sl. óskaði forsætisráðherra svo nánari skýringa á ákveðnum atriðum, meðal annars um meinta „upplýsingagjöf starfsmanna Seðlabanka Íslands til Ríkisútvarpsins um fyrirhugaða húsleit hjá Samherja hf. 27. mars 2012“. Þess var óskað að svar bærist „eigi síðar en 1. apríl nk.“ Seðlabankinn hunsaði þennan frest líkt og hinn og svaraði ekki fyrr en 12. apríl.“

„Engar skynsamlegar skýringar hafa verið gefnar á því hvers vegna Seðlabankinn hunsar ítrekað rúma tímafresti forsætisráðherra,“ bætir hann við.

Um hinn meinta leka segir Davíð: „Og ekki er víst að forsætisráðherra þyki bætur í því að fá svör um það að tölvupóstar seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra, sem og skjalakerfi bankans, hafi verið skoðuð og að þar hafi ekki fundist lekinn til RÚV. Datt einhverjum í hug að gögn um lekann lægju fyrir með þeim hætti?“

„Væri ekki nær að starfsmenn bankans greindu frá aðkomu sinni að lekanum? Eða eiga landsmenn að trúa því að RÚV hafi fyrir tilviljun verið með vélar sínar í gangi við starfsstöðvar Samherja einmitt umræddan dag?“ spyr hann að lokum.