Davíð Þór Björgvinsson, prófessor og fyrrum dómari við Mannréttindadómstól Evrópu segir andmælarétt umsækjenda um embætti dómara við Hæstarétt að engu hafðan.
Hann hafi sem umsækjandi um embættið skilað ítarlegum athugasemdum við drög að áliti dómnefndar sem birt hafi lokaniðurstöðu sína aðeins þremur eða fjórum klukkustundum síðar.
Athugasemdir hans hafi ekki leitt til neinna breytinga á texta álitsins, jafnvel þótt leiðrétta hafi þurft fullyrðingar þar um staðreyndir.
Þetta kom fram í samtali Davíðs Þórs Björgvinssonar við Ólafana í þætti þeirra á Hringbraut í kvöld, en þáttur þeirra er frumsýndur öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30.
Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar og fjalla um þjóðmál eins og þeim er einum lagið.