Davíð: þjóðin hljóti að horfa til sterkra manna

Davíð Oddsson segist eiga inni margra mánaða leyfi hjá Mogganum og að það hefjist nú með baráttunni um Bessastaði. Þetta kom fram í viðtali á Bylgjunni í morgun.

Hann segir fráleitt að Ólafur Ragnar skyldi hafa beitt neitunarvaldi sínu þegar hann synjaði Davíð að undirrita fjölmiðlalögin. Hann telur að Guðni Th Jóhannesson forsetaframbjóðandi hafi ekki farið nógu varlega, ekki gætt hófs eða sanngirni í upptaki baráttu sinnar og hefur ritað um það Reykjavíkurbréf. Ef megi líta á Davíð sjálfan sem fasteign leynist engir faldir gallar í honum sjálfum, sagði hann sjálfur. Davíð telur það helst vinna með sér í baráttunni um Bessastaði nú að í hinum \"válynda heimi nær og fjær\" þá sé ekki rétt að hafa forsetaembætti sem fyrst og fremst sinni móttöku. Verið sé að leita að manni sem geti brugðist við heilmikilli vá sem geti steðjað að.

Davíð markerar sig því með sama hætti og Ólafur Ragnar, að þjóðin verði að hafa menn í stafni, sterka leiðtoga, sem geti tekið ákvörðun, láti engan rugla eða hræra í sér. Þjóðin hljóti að horfa til slíkra manna, sagði Davíð í viðtali á Bylgjunni í morgun.