Davíð spáir upplausn á vinstri væng

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins segir í leiðara blaðsins í dag að ósættið innan raða stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi, sem menn reyni að fela, sé djúpstæðara en mátt hefði ætla.

Þessum fyrrum forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins leiðast ekki beinlínis átökin í villta vinstrinu eins og lesa má úr tilskrifi dagsins; Samfylkingin hangi varla á límingunum og \"fullkomin óvissa ríkjandi um hver ráði för innan flokksins og hver muni leiða hann eftir næsta landsfund\" sem raunar enginn viti hvenær fari fram.

Missættið innan Bjartrar framtíðar sé \"óvenjulega alvarlegt\" en flokkurinn hafi stigið brosandi inn í þetta kjörtímabil en ekki leið á löngu \"þar til flokkurinn virtist lognast út af.\"

Píratar glími líka við \"alvarleg innanmein\" og þó menn þar á bæ leggi sig fram um að \"fela ósætti innan flokksins\" þá hafi grasrótin staðið upp gegn tveimur af þremur þingmönnum flokksins sem vilji ekki hætta á þingi eftir þetta kjörtímabil.

Davíp skrifar: \"Ýmsar ástæður eru fyrir ósættinu innan þessara þriggja flokka og sumar eiga eftir að koma fram með skýrari hætti.\" Og hann undrast að svona nýir eða nýlegir flokkar \"skuldi ekki hafa meira fram að færa en raun ber vitni\" en þar fari ekki fram neinar málefnalegar umræður svo heitið geti, en allt gangi bara út á vinsældarmælingar sem kunni ekki góðri lukku að stýra.