Davíð Oddsson segir að ekki sé upplagt fyrir Ólaf Ragnar Grímsson að forsetinn bjóði sig enn eina ferðina fram til embættis forseta Íslands. Sú sé ein ástæða þess að hann fari sjálfur fram.
Þetta kom fram í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Davíð segir að enginn gangi að nokkru vísu hvað fylgi varðar. Það sé ótrúlegt hver styðji hvern.