Davíð: ósanngjarnt að sdg fór frá

Davíð Oddsson sem tilkynnti í morgun að hann ætlaði að bjóða sig fram til forseta Íslands segir um ástandið í þjóðmálum undanfarið að mikill gauragangur hafi orðið með afsögn forsætisráðherra. Hann spyr af hverju Sigmundur Davíð hafi einn þjóðhöfðingja þurft að hrökklast frá í heiminum vegna Panamaskjalanna sem forsætisráðherra eftir að sænskur blaðamaður sat fyrir honum. Sigmundur Davíð hafi gert margt mjög vel og málalok hans séu ekki sanngjörn. Ekki megi skapa þá reglu þótt menn komi saman á Austurvelli að bægja eigi burt lýðræðislegum ákvörðunum. Þetta kom fram í viðtali á Bylgjunni í morgun.