Davíð og vinsældir guðna

 Leiðari Morgunblaðsins fjallar um ágæti eða ekki ágæti skoðakannanna hér á landi sem og víðar. Nýbirt skoðanakönnun um vinsældir Guðna Th. Jóhannesson er til umdjöllunar í leiðaranum:

„Birt var könnun frá fyrirtækinu MMR þar sem sagði að okkar ágæti forseti mældist með tæplega 70 prósent vinsældir og hefði enginn forseti annar mælst með annað eins í sögu fyrirtækisins. mbl.is varð eins og öðrum fjölmiðlum það á að birta þetta athugasemdalaust, en glöggur lesandi benti á að MMR væri tiltölulega ungt fyrirtæki og hefði aldrei áður mælt vinsældir nýkjörins forseta!“

„...glöggur lesendi benti á...“ segir í leiðaranum og þar er í raun verið að draga í efa að rétt sé að geta um könnun sem þessa og ritstjórinn játar mistök, að mbl.is hafi orðið á að birta niðurstöðuna.

„Þetta breytir auðvitað engu um gott álit fólks á Guðna Jóhannessyni, en lítur ekki vel út fyrir fyrirtækið né þann sem keypti spurninguna, ef þannig háttar til,“ segir í tveimur bombum, kannski má segja fýlubombum, í leiðaranum. Önnur er að skrifa ekki Th. í nafni forsetans, einsog forsetinn skrifar nafn sitt sjálfur og hin fýlubomban, látið er að því liggja að spurningin hafi verið keypt, jafnvel af forsetanum sjálfum.