Davíð og Björn á öndverðum meiði um bréf Stefáns: „Hlýtur að hafa einhverjar afleiðingar“

Misjafnar skoðanir eru á tölvupósti Stefáns Hrafns Hagalín, samskiptastjóra Landsspítalans, til allra stjórnenda spítalans um að svara ekki fjölmiðlum heldur beina fyrirspurnum beint á sig. Í póstinum telur hann meðal annars upp símanúmer hjá Ríkisútvarpinu og Morgunblaðinu og talar um blaðamenn sem „skrattakolla“.

„Einnig er hreinskilnislega yfirhöfuð ágætis regla að svara bara alls ekki ekki beinum símtölum fjölmiðla,“ segir í bréfinu. Stefán hefur sjálfur gripið til varna á Twitter og segir að ekki sé um að ræða neina þöggun, tilgangurinn sé að hafa yfirsýn yfir fyrirspurnir. Þá hafi hann verið þreyttur þegar hann talaði um „skrattakolla“. Páll Matthíasson, forstjóri spítalans, hefur ekki viljað ræða þessi fyrirmæli við fjölmiðla.

Morgunblaðið fer hörðum orðum um bréf Stefáns í leiðara blaðsins í dag, má gera ráð fyrir að það haldi Davíð Oddsson ritstjóri á penna.

„Þegar mikið ligg­ur við og þörf á upp­lýs­ing­um er meiri en alla jafna, mætti þó ætla að reynt yrði að auðvelda upp­lýs­inga­gjöf til al­menn­ings. Dæmi um það er ástandið sem nú rík­ir í þjóðfé­lag­inu, umræður um al­var­leika far­ald­urs sem geis­ar og ekki síst staða þjóðar­sjúkra­húss­ins, sem tölu­vert mæðir á,“ segir í leiðaranum.

„Við þess­ar aðstæður ger­ist það þó að deild­ar­stjóri sam­skipta­deild­ar Land­spít­al­ans send­ir stjórn­end­um spít­al­ans tölvu­póst og gef­ur þeim fyr­ir­mæli um að svara ekki fjöl­miðlum. Stjórn­end­un­um er sagt að „þess­ir skratta­koll­ar“, eins og fjöl­miðlarn­ir eru nefnd­ir, hringi á öll­um tím­um sól­ar­hrings, en til að stjórn­end­urn­ir svari ekki óvart þá er gefið upp á hvaða tölu­stöf­um síma­núm­er miðlanna byrja.“

Þar segir að bréfið sé með ólíkindum.„Þessi tölvu­póst­ur sam­skipta­stjór­ans er með mikl­um ólík­ind­um og hlýt­ur að hafa ein­hverj­ar af­leiðing­ar. Ekki síst vegna þess að þetta lýs­ir ein­hverju hug­ar­fari sem er veru­legt áhyggju­efni fyr­ir al­menn­ing.“

Segir að það þurfi að vera beint aðgengi fjölmiðla þegar bæði almenningur og fjölmiðlar sjálfir fái á tilfinninguna að verið sé að reyna að stýra umræðunni.

„Þjóðarspít­al­inn get­ur ekki leyft sér að láta þessi fyr­ir­mæli standa. Hann vill stuðning al­menn­ings og þarf á hon­um að halda. Rétta leiðin til þess er ekki að veit­ast að sendi­boðanum með hra­kyrðum og reyna að hefta för hans.“

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir í dagbók sinni í dag að orðið „skattakollar“ hljóti að teljast vinaleg glettni.

„Hvort almenningur hefur ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur af þessu er álitamál. Fréttir af Landspítalanum skortir ekki og mun ekki skorta hverjar svo sem afleiðingar þess verða að samskiptastjórinn hafi hrapað að orðinu „skrattakollur“ þegar honum var hugsað vinalega til fjölmiðlamanna,“ segir Björn.

„Morgunblaðið hefur í ritstjórnargreinum andmælt slaufumenningunni. Því verður ekki trúað að orðið „skrattakollur“ um fjölmiðlamenn verði til stefnubreytingar í því efni.“