Davíð oddsson tók frumkvæðið en halldór vildi fara aðra leið: logandi óánægja innan flokksins

Fyrir skemmstu kom út ævisaga Halldórs Ásgrímssonar eftir Guðjón Friðriksson sagnfræðing en hún verður umfjöllunarefni kvöldsins í þættinum Sögu & samfélagi á Hringbraut í umsjón Björns Jóns Bragasonar. Gestir hans eru nafnarnir Jón Kristjánsson, fyrrv. heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Jón Sigurðsson, fyrrv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, en sá síðarnefndi var arftaki Halldórs á stóli formanns Framsóknarflokksins.

Meðal þess sem rætt verður í þættinum er stuðningur Íslands við innrásina í Írak árið 2003, en Jón Kristjánsson segir að Halldór hafi viljað að málið færi fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Vera Íslands á lista „hinna viljugu þjóða“ olli miklum deilum og naut lítils stuðnings meðal framsóknarmanna. Jón Kristjánsson segir að rétt hefði verið að ræða málið fyrst í utanríkismálanefnd Alþingis.

Jón Sigurðsson segir að málið hafi verið á „borði forsætisráðherra [Davíðs Oddssonar] sem staðið hafði í erfiðum viðræðum út af framtíð Keflavíkurstöðvarinnar þarna skömmu áður og snurða var hlaupin á þráðinn í samskiptunum“. Hann bætir við:

„Alþingi hafði verið slitið og kosningabarátta var hafin og mjög erfitt að kalla saman utanríkismálanefnd þar sem þingmenn höfðu lokið sínu umboði. Á ákveðnum tíma tekur forsætisráðherra frumkvæði í þessu en Halldór vildi fara aðra leið.“

Þeir Jón Sigurðsson og Jón Kristjánsson segja viðbrögðin í kjölfarið lýsa vel karakter Halldórs, sem hefði verið ákaflega traustur í samstarfi, en þegar yfirlýsingin er komin út, skeytið farið til Bandaríkjanna, þá tekur Halldór á sig meðábyrgðina. Jón Sigurðsson segir:

„Þó að hann væri mjög óánægður með þetta og logandi óánægja innan flokksins þá stendur hann með þeirri ákvörðun sem verður niðurstaðan þó að hann hafi ekki verið sáttur við hana.“

Saga & samfélag á Hringbraut í kvöld kl. 21.30.