Davíð oddsson fer fram til forseta

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrum forsætisráðherra og seðlabankastjóri, býður sig fram til embættis forseta Íslands.

Þetta kom fram í morgunþætti Bylgjunnar í morgun.

Davíð staðfesti í viðtali að hann færi fram og tók þessa stóru ákvörðun í gær.