Davíð oddsson: ég var pólitískt viðrini

Forsetaframbjóðandinn Davíð Oddsson sest í gráa stólinn gegnt Sigmundi Erni í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld og ræðir ævi sína og umtöluð störf í gegnum tíðina.

Viðtalið er fyrst og síðast manneskjulegt, að því er þáttastjórnandinn segir og sýnir ef til vill nýja hlið á þessum umdeilda stjórnmálamanni, en þar ræðir hann í þaula samband sitt við móður sína, sem er nýlátin, svo og við föðurinn, en þeirra samvera var slitrótt eins og velur kemur fram í einlægu samtali þeirra Davíðs og Sigmundar Ernis. Þá má þess einnig geta að forsetaframbjóðandinn lýsir því líka með tilþirfum hvernig fundum hans og konunnar, sem síðar varð eiginkona hans, bar saman, en henni þótt hann gamall og skrýtinn í fyrstu, nokkuð sem Davíð telur sig einmitt vera orðinn í dag.

Hann rifjar líka upp sín fyrstu pólitísku skref, en í Menntaskólanum í Reykjavík, hvar hann varð inspector scholae, var hann pólitískt viðrini að eigin sögn og hafði ekki hug á frama á því sviði; þar keppti hann við Þorvald Gylfason um æðsta embætti skólafélagsins og menn eins og Geir H. Haarde og Kjartan Gunnarsson hefðu stutt Þorvald en Kári Stefánsson og Álfheiður Ingadóttir hefði stutt hann, nokkuð sem sú síðarnefnda hefur líklega aldrei fyrirgefið sér, að því er Davíð telur nokkuð víst.

Þá ræðir Davíð líka hlutskipti sitt sem eins umtalaðasta stjórnmálamanns síðustu áratuga sem lýst hefur verið með fleiri og sterkari lýsingarorðum en þekkst hefur í pólitíkinni, en um Davíð má segja að hann hafi bæði verið vægast sagt mjög umdeildur og afar dáður í embætti.

Loks er því velt upp hvernig þessi einn mesti sigurvegari íslenskra stjórnmála frá 1974 til 2005 mun taka því að tapa, fari svo að hann bíði lægri hlut í forsetakosningunum á laugardag.

Mannamál eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld.