Davíð nær fangelsinu en forsetaembætti

Mjög skiptar skoðanir eru meðal Íslendinga um frétt gærdagsins. Sumir fagna forsetaframboði Davíðs Oddssonar og þar á meðal Páll Vilhjálmsson blaðamaður sem skrifar í bloggpistli: \"Til að sitja Bessastaði, svo að sómi sé af, þarf lífsreynslu, dómgreind og pólitíska kunnáttu. Í ljósi veikrar stöðu alþingis er brýnna en löngum áður að forsetinn kunni skil á innviðum stjórnmálanna. Bæði sitjandi forseti og Davíð Oddsson uppfylla kröfur sem gerðar eru til forseta. Í tveim stærstu álitamálum seinni ára, Icesave og ESB-umsókninni, voru Davíð og Ólafur Ragnar sammála. Ólafur Ragnar getur áhyggjulaus gefið keflið til Davíðs og gengið sáttur af vettvangi þjóðmálanna.\"

Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi, telur aftur á móti að Davíð Oddsson ætti fremur að sæta rannsókn en gera sér vonir um að verða forseti Íslands.  \"Þessi maður ætti að sæta rannsókn og ákæru fyrir pólitíska og efnahagslega háskahegðun - fremur en að ryðjast nú inn á svið forsetakosninga með ránsfeng LÍÚ greifannsa á bak við sig,\" skrifar Benedikt á facebook um Davíð.

Benedikt telur að fréttin af framboði Davíðs Oddssonar ætti að beina sjónum að \"hrikalegum ferli hans og skelfilegri arfleifð\". Hann kallar Davíð \"meginföður sóðalegrar einkavinavæðingar banka og ríkiseigna\". Davíð sé pólitískur orsakavaldur útrásarbólunnar sem síðan settist sjálfur í eftirlitssætið í Seðlabankanum. \"Hann brást á öllum póstum; stórfelld og vaxandi misskipting auðs og eigna - hrikleg aflandsvæðing eignatekna og arðs af sameiginlegum auðlindum - allt í boði Davíðs og auðgreifanna.\"

Þá bendir framkvæmdastjóri Búseta á Norðulandi að Davíð sé maðurinn sem kom í veg fyrir að Kaupþing færði sig úr krónuhagkerfinu. \"Hann beitti ekki tiltækum stjórntækjum til að koma í veg fyrir að ICESAVE-skrímslið yxi yfir höfuð - hann veitti \"Kaupþingslánið\" - og klíndi samábyrgð á Geir Haarde - skildi Seðlabankann eftir gjaldþrota. Dissaði Mervyn King bankastjóra Englandsbanka með því að svara ekki bréfi hans í mars-apríl 2008 þar sem boðin var fram aðstoð - og líkur benda til að hann hafi ekki einu sinni sagt Geir Haarde frá því boði Englandsbanka þegar Geir varð sér til skammar í heimsókn til Gordon Brown í Dawningstræti 10 þarna í apríl 2008. Ekkert gerðist hjá Seðlabanka Davíðs þegar skýrsla Buitier og Sibert um skuggalega stöðu Landsbankans lá fyrir í Mars og lokagerð í júní/júlí 2008. Hvar er svo \"símtalið fræga\" milli Davíðs og Geirs, er ekki mál til komið að opinbera það alveg?\"

Benedikt hnykkir á söguyfirferð sinni um Davíð með eftirfarandi lokaorðum: \"Maðurinn ætti auðvitað fremur að reikna með því að leið hans gæti legið í Hegningarhús heldur en að hann reikni með því að vera verðlaunaður með lyklavöldum á Bessastöðum. Unga kynlóðin verður að gæta sín hér og nú og kjósa fyrir framtíðina - ekki drauga fortíðar eða slæmrar sagnfræði.\"