Ekkert lát er á Staksteinaskrifum Morgunblaðsins um RÚV, eða öllu heldur \"RÚV\" eins og ritstjórinn Davíð Oddsson kýs að gæsalappa upp á nafn stofnunarinnar í Efstaleiti - og í blaði dagsins er nú loks tekinn af allur vafi hvor fjölmiðillinn er merkilegri.
Tilefni skrifanna er umfjöllun um fjölmiðlaskýrsluna og skoðanaskipti þingmannanna Helgu Völu Helgadóttur og Óla Björns Kárasonar um mikilvægi og fyrirferð fjölmiðla á íslenska örmarkaðnum, en Samfylkingarkonan sagði þar RÚV fara fremst í menningarstarfsemi á meðan íhaldsmaðurinn líkti RÚV við fílinn í stofunni.
Og Davíð hendir þetta á lofti í dag: \"Fjölmiðill, eins og hið 104 ára Morgunblað (mun eldra en hin „ævagamla stofnun“) hefur birt ógrynni menningarefnis og varðveitir það og það gera fleiri. Þegar flett er bókum um sögulegt efni sem nær yfir síðustu 104 árin sést að í þeim er oftar vitnað í Morgunblaðið en nokkurn annan miðil. Sjaldan er vitnað í „RÚV.“\"
Og þar hafa menn það, dómur sögunnar er fallinn, Mogganum í vil - og ekki lýgur Davíð.