Pistlahöfundurinn Ólafur Jón Sívertsen á hringbraut.is undrast í meira lagi tilskrif Davíðs Oddssonar ritstjóra Morgunblaðsins sem dásami og verji Silvio Berlusconi, þann dæmda sakamann.
Ólafur segir að vísu skiljanlegt að Davíð mæri forsætisráðherra Grikkja í leiðara blaðsins, sem sé jú að fara leið sem ritstjórinn hafi stutt hér á landi í seinni tíð: \"Hann lofaði að hækka launin, lofaði að skera niður skuldir og efla velferðarkerfið og lífeyriskerfið stórlega á tímum alvarlegs niðurskurðar.\" Ólafur Jón segir að engin alvöru stjórnmálahreyfing á Grikklandi hafi að vísu treyst sér í slík yfirboð, en það megi einu gilda, Davíð styðji slíkt heimafyrir. En bíðum við: \"Nú stendur byltingarmaðurinn Tsipras frammi fyrir veruleikanum – og kennir öðrum um. Þetta sé allt útlendingum að kenna. Þetta eru utanbæjarmennirnir.\"
En þá að Berlusconi: \"Það sem vekur meiri athygli, \" skrifar Ólafur Jón \"er að Morgunblaðið er í sama leiðara að verja (eina ferðina enn) Berlusconi fyrrum forsætisráðherra Ítalíu. Sá var 9 ár forsætisráðherra Ítalíu og afar umdeildur maður. Hann var ma. dæmdur í fjögurra ára fangelsi á Ítalíu. Meiru skiptir þá að hann var dæmdur frá öllum stjórnnálaafskiptum í fimm ár af dómsstólum þar í landi.\"
Og hinn þjóðmálaþenkjandi pistlahöfundur sem vakið hefur athygli fyrir beittan penna skrifar enn: \"Hið virta breska tímarit Economist, birti 26. apríl 2001 forystugrein undir fyrirsögninni \Af hverju er Silvio Berlusconi óhæfur að leiða Ítalíu\'. Og sama tímarit í júní 2011