Davíð launahæstur fjölmiðlafólks

Davíð Odsson ritstjóri Morgunblaðsins ber höfuð og herðar yfir annað fjölmiðlafólk á Íslandi hvað tekjur varðar en launatékki hans á mánuði í fyrra nam röskum 3,3 milljónum króna eða sem nemur nærri 40 milljónum á ári.

Fjölmiðlafólk á Íslandi ber annars mjög misjafnlega mikið úr býtum ef marka má tekjublað Frjálsrar verslunar sem birtir þessa dagana tekjur vel yfir þrjú þúsund Íslendinga. Þannig er starfsbróðir Davíð á ritstjórastóli Moggans, Haraldur Johannessen með 1,8 milljónir á mánuði og er því rétt rösklega hálfdfrættingur á við Davíð í launum. Ritstjóralaun þessa blaðs eru því samtals ríflega 60 milljónir á ári eða sem jafngildir öllum launakostnaði á vefmiðli á borð við Kjarnann, svo dæmi sé tekið.

Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri er með yfir 1,7 milljón króna í mánaðartekjur, en af óbreyttum starfsmönnum hins opinbera fjölmiðils er Egill Helgason dagskrárgerðarmaður á RÚV launahæstur þar á bæ með rösklega 1,3 milljónir í mánaðartekjur, Sigmar Guðmundsson fráfarandi ritstjóri Kastljóss kemur þar fetinu á eftir og Óðinn Jónsson sem lengst af var fréttastjóri RÚV á síðasta ári er með rétt röska milljón í tekjur á mánuði.

Af frjálsum fjölmiðlum er Logi Bergmann einna launahæstur með rösklega 1,1 milljón króna á mánuði, Jón Trausti Reynisson ritstjóri Stundarinnar kemur þar rétt á eftir með ríflega milljón á mánuði og Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlakóngur sem farið hefur mikinn síðustu mánuði í kaupum á miðlum er með 926 þúsund krónur í mánaðartekjur.

Agnes Bragadóttir á Mogga er með 994 þúsund, Auðunn Blöndal með svipað, Rikka á Stöð 2 með 923 þúsund, Kristján Már á sama miðli með rétt innan við 900 þúsund, Þórhallur Gunnarsson í Saga film með 892 og Rakel Þorbergsdóttir núverandi fréttastjóri RÚV er á sama reki.

Bigi Ágústsson á RÚV er með 845 þúsund, Broddi Broddason á sama miðli með 776, Gissur Sigurðsson á Bylgjunni með 748, álíka og vinnufélagi hans Heimir Már Pétursson, Andri Freyr Viðarsson á Rás 2 er með 647 og Gunna Dís sem situr við hlið hans er með 40 þúsundum króna minna í tekjur.

Á meðal fjölmiðlafólks sem ber minna úr býtum en 600 þúsund á mánuði má nefna Láru Ómarsdóttur á RÚV, Jón G. Hauksson á Frjálsri verslun, Þorbjörn Þórðarson á Stöð 2, Jónas Haraldsson á Fréttatímanum og Sigmund Erni Rúnarsson á Hringbraut.

Undir 550 þúsundum króna eru svo þekktir fjölmiðlungar á borð við Kolbrúnu Bergþórsdóttur, Þorgeir Ástvaldsson, Björk Eiðsdóttur og Frosta Logason sem rekur lestina á lista Frjálsrar verslunar yfir tekjur fjölmiðlafólks en hann er með 469 þúsund krónur á mánuði.