Davíð hjólar í blaðamenn og birgittu

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins, Davíð Oddsson, hjólar af krafti í þingmann Pírata sem og ýmsa blaðamenn í leiðara blaðsins í dag. Þá gerir Davíð upp Búsáhaldabyltinguna og segir þann tíma mesta niðurlægingarskeið íslenskra stjórnmála.

Atburðir síðustu vikna eftir afhjúpun Panamaskjalanna eru tilefni leiðara Davíðs. Hann gerir vinnu íslensku blaðamanna tortryggilega með því að segja að \"smælki þýfis var dreift í skipulögðum skömmtum\". Mörg önnur háðuleg orð hefur hann um blaðamenn sem hann telur virka þáttakendur í atburðarás og setur gæsalappir utan um orðið \"fjölmiðlamenn\".

Afhjúpun rannsóknarblaðamannanna hafði mikil áhrif og hefur orðið til þess að Sigmundur Davíð er hættur sem forsætisráðherra. Ný stjórn er komin til valda en þó á gömlum grunni framsóknar- og sjálfstæðismanna. Það hefur farið illa í Davíð að Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hefur sakað núverandi stjórn um valdarán. Segir Davíð að Birgitta hafi sett persónulegt met bæði í grunnri laug og djúpri en skýrir ekki nánar.

Davíð hefði ekki orðið skemmt ef mótmælin á Austurvelli hefðu leitt til þess að blásið hefði verið til kosninga strax eins og krafa tugþúsunda fólks var um. Hann fer niðrandi orðum um mótmælendur og ber saman mótmælin nú við Búsáhaldabyltinguna, mesta niðurlægingarskeið íslenskra stjórnmála þegar \"ríkisstjórn og þingmeirihluti [voru] hrakin frá völdum með hávaða, sóðaskap og skemmdarverkum úti á Austurvelli\" eins og Davíð orðar það. \"Það væri ömurleg afskræming á lýðræðinu ef það hefði aftur gerst nú,\" skrifar Davíð.

Þá segir Davíð í leiðara Moggans að upphrópanir Birgittu um valdarán eigi sér væntanlega stoð í að hún kenni sig við Pírata og að sjórán og valdarán séu væntanlega grunnstoðir lýðræðis í hennar huga.