Davíð: afglöp stjórnar, ekkert samráð

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra gagnrýnir ríkjandi stjórnvöld fyrir að setja Ísland gagnrýnislaust og án forvinnu á lista þjóða í Evrópu sem vilja refsa Rússum fyrir manréttindabrot og herbrölt.

Þetta kemur fram í leiðara þessa fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins í dag. Hann treystir ekki utanríkisþjónustu Íslands, segir hana vera alltof halla undir Evrópusambandið: \"Því miður er vitað að utanríkisráðuneytinu er ekki endilega best treystandi til að gæta hagsmuna Íslands þegar kemur að samskiptum við ESB, en það missir jafnan fótanna í nálægð þess, eins og sýndi sig svo oft og með svo niðurlægjandi hætti á seinasta kjörtímabili. Og á þessu kjörtímabili undirbjó ráðuneytið hið fræga furðubréf til forystu ESB, sem valdið hefur ríkisstjórninni svo miklum vandræðum og álitshnekki.\"

Hann gagnrýnir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fyrir að \"hoppa um borð\" á lista þjóða sem fara nú gegn Rússum án þess að meta fyrst hagsmuni Íslendinga sem finna muni þjóða mest fyrir afleiðingum innflutningsbannsins til Rússlands; hvorki hafi þjóðin verið spurð hvort hún vildi fara þessa vegferð né heldur utanríkismálanefnd Alþingis: \"Málið var meðhönlað líkast því að verið væri að endurnýja ökuskírteini,\" skrifar Davíð í leiðara dagsins.

Hann segir stjórnina sitja uppi með afglöp sín: \"Það er fyrst núna að renna upp fyrir þessu fólki hversu dýrkeypt þessi síðustu afglöp eru að verða. Því, eins og fyrr sagði, var látið undir höfuð leggjast að gera áhættumat eins og sjálfsagt var og kynna það þjóðinni áður en \"boðið\" um aðild að refsiaðgerðunum var þegið,\" skrifar Davíð.

Í þessu sambandi er ef til vill rétt að rifja upp að sjálfur var Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra gagnrýndur harðlega fyrir að setja Íslendinga á lista hinna viljugu þjóða í tilefni af innrás bandamanna í Írak fyrir 12 árum, en þá ákvörðun tók hann einn, án samráðs við ríkisstjórn, Alþingi, utanríkismálanefnd og þjóðina.