„Heilbrigðisþjónusta varðar það sem mestu skiptir, hamingju og lífsgæði fólks. Flest erum við sammála um að nýta sameiginlega sjóði til að tryggja örugga og hagkvæma heilbrigðisþjónustu aðgengilega öllum landsmönnum. En þetta kostar sitt. Nýir möguleikar til greiningar og meðferðar sjúkdóma kalla á æ meiri kostnað. Næstu áratugi aukast áskoranirnar enn með meiri öldrun þjóðarinnar og lægri fæðingartíðni. Þar sem fjármagn er af skornum skammti verður stóra málið forgangsröðun fjármuna og hagkvæmasta nýting þeirra.“
Þannig hefst leiðari eftir Davíð Stefánsson ritstjóra Fréttablaðsins en þar fjallar Davíð um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. Davíð bendir á að heilbrigðisstefna sem samþykkt var á Alþingi og gildir til ársins 2030 fjallar um skipulag, verkaskiptingu og ábyrgð innan heilbrigðiskerfisins og er stefnan að veita sjúklingum betri þjónustu. Davíð segir:
„Alvarlegar athugasemdir voru gerðar við þá ofurtrú ráðherrans að ríkisvaldið eitt eigi að sinna heilbrigðismálum. Gagnrýnt var að lítið samráð væri haft við hryggjarstykkið í íslenskri heilbrigðisþjónustu, það er alla þá sem standa utan ríkisrekinna stofnana,“ segir Davíð og bætir við:
„Kröfunni um fyrsta flokks þjónustu við sjúklinga með hagkvæmni að leiðarljósi verður best svarað með því að hvetja til samkeppni í heilbrigðisþjónustu. Þannig nýtast fjármunir skattgreiðenda best. Þróa þarf áfram sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á vegum annarra en hins opinbera með greiðsluþátttöku ríkisvaldsins á sömu forsendum og þjónusta hins opinbera. Þannig kaupi ríkið fyrir fram skilgreinda þjónustu en nýti samkeppni og fjölbreytt rekstrarform til að ná fram hagræðingu, aukinni hagkvæmni og gæðum.“
Þá segir Davíð mikilvægt að forgangsraða og það sé eitt af erfiðari viðfangsefnum sem bíði heilbrigðisráðherra. Þá rifjar Davíð upp nýlega grein eftir Pálma V. Jónsson, yfirlækni öldrunarlækninga á Landspítalanum, þar sem læknirinn rifjaði upp fyrri stefnumörkun og litlar efndir. Davíð segir:
„Dæmi þar um er skýrsla um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu frá árinu 1998 sem unnin var af þingmönnum allra flokka, þverfaglegum hópi heilbrigðisstarfsmanna og siðfræðingum frá Háskóla Íslands. Eftir samþykkt Alþingis hefur ríkt grafarþögn
Sama gildir um ýmis fyrri verk, svo sem heilbrigðisáætlun til ársins 2010 og 2020, ásamt stefnumótun í málefnum aldraðra. Stefnum er ekki fylgt. „Hefur einu gilt hvort áraði vel eða illa í þjóðarbúskapnum. Nú hefur verið birt heilbrigðisstefna til ársins 2030. Höfum við tryggingu fyrir því að þeirri heilbrigðisstefnu eða nýrri stefnumótun um forgangsröðun verði fylgt, fremur en fyrr?“ spyr Pálmi.“
Þá segir Davíð að lokum:
„Prófessorinn hvetur til þess að opinber stjórnsýsla, sem hafi vaxið fiskur um hrygg, skoði árangur fyrri stefnumótunarvinnu á sviði heilbrigðisþjónustu. Hvað hafi gengið eftir og hvað ekki og koma með tillögur með áherslu á ábyrga eftirfylgd. – Er það ekki skynsamlegt áður en lengra er haldið?“
Davíð: „er það ekki skynsamlegt áður en lengra er haldið?“
Fleiri fréttir
Nýjast