Hörð innanflokksátök hafa átt sér stað síðustu vikur og mánuði innan Sjálfstæðisflokksins. Hefur Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins gagnrýnt forystu síns gamla flokk harðlega í nokkrum Reykjavíkurbréfum og leiðurum og meðal annars talað niðrandi um konur, sjá frétt Hringbrautar hér. Össur Skarphéðinsson tjáir sig átökin innan Sjálfstæðisflokksins. Össur segir:
„Davíð Oddssyni er að takast það sem vinstri mönnum tókst aldrei - að rífa sundur Sjálfstæðisflokkinn. Allt bendir til að ritstjóra Moggans sé að takast að leiða flokkinn inn í skeið hjaðningavíga og langvarandi áhrifaleysis í stjórnarandstöðu.“
Egill Helgason stjórnandi Silfursins á RÚV tjáir sig einnig og segir: „Þetta er það sem er að gerast með rótgróna hægri flokka alls staðar. Hægri pópúlisminn er að rífa þá í sundur. Hér er það máski í líki Davíðs, en þetta er alþjóðleg þróun og fjallað um þessa kreppu íhaldsflokka í Economist í dag.“
Þá bætir Össur við:
„Allt er það í boði sægreifanna sem eiga Moggann og borga bæði tapið af honum og laun Davíðs. Hann er langáhrifamesti stjórnarandstæðingurinn í dag og fyrir vinstri vænginn ígildi vel þjálfaðrar fimmtu herdeildar.“