Snædís Rán Hjartardóttir sigraði í kökukeppni Hringbrautar og Kötlu sem lauk á miðvikudag. Sætabrauðsdrengir skipuðu dómnefndina og voru þeir á einu máli um að smákökurnar sem bárust í keppnina hafi borið af öðrum kökum. Uppskriftin var einstaklega vönduð og hátíðleg og smákökurnar litu fallega út.
Snædís Rán, sem er daufblind og í hjólastól, hefur vakið landsathygli fyrir baráttu sína fyrir því að túlkaþjónusta standi fötluðum til boða allt árið. Hún lætur fötlun sína ekki stoppa sig í því að lifa fjölbreyttu og innihaldsríku lífi. Hún stundar nú nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og hefur líka mjög gaman af að baka. Snædís setti sér það markmið að sigra í keppninni til að fá Kenwood hrærivélina frá Heimilistækjum, en það var einmitt hluti af glæsilegum vinningum fyrir 1.sæti keppninnar.
Snædís Rán fær hjálp frá aðstoðarfólki sínu við að baka og er hún óhrædd við að breyta uppskriftum og prófa sig áfram. Í þættinum Fólk með Sirrý í gærkvöld sagðist hún t.d. setja sítrónur i gulrótarköku, ber í rúllutertu og ýmislegt fleira sem hún hefur gaman af að prófa. Hún spyr aðstoðarfólk sitt út í hvernig kökurnar líti út á hverju stigi fyrir sig því hún segir að útlit á kökum skipti miklu máli, ekki síður en bragðið.
Aðspurð hvernig sjónin sé sagði Snædís Rán að hún sjái alveg nógu vel en það séu bara aðrir sem sjái svo miklu betur sagði Snædís Rán Hjartardóttir glöð í bragði í viðtali við Sirrý.
Sjá má þáttinn
hér á hringbraut.is.
Ljúffengar sultukökur - uppskriftin:
200 gr kornax hveiti í rauðum pakka
2 tsk lyftiduft
¼ tsk sjávarsalt, fínmulið
150 gr kalt smjör skorið í teninga
125 gr sykur
1 hrært egg
1 tsk möndludropar
Duft úr tveimur vanillustöngum
Áður en kökurnar fara í ofninn:
Hrætt egg
Hindberja og graneteplahlaup frá St. Dalfour
Gylltur kristalsykur með perluáferð
Aðferð:
Hveiti, lyftiduft, salt og smjör sett saman og hrært þar til kemur mylsnu-áferð. Sykurinn og vanilluduftið settnvarlega saman við, því næst eggið og möndludropar. Þessu er blandað saman þar til deigið er mjúkt en ekki er æskilegt að hræra of lengi því þá klessist það. Þegar réttri áferð hefur verið náð er deiginu rúllað upp í plastfilmu í rúmlega 3 cm þykka pylsur og geymt í ísskáp í 2 klst eða þar til það stífnar. Rúllunni er svo velt uppúr gyllta sykrinumog skorin niður í ½ cm þykkar sneiðar, búnar til holur í miðjunni með puttanum og kökurnar penslaðar með hrærðu eggi og ½ tsk af sultu sett í holuna á hverri og einni.
Kökurnar eru bakaðar við 180°C á blástri í 10 mínútur og látnar kólna á grind.