Dauðinn er sérstök stund

Í samfélagsþættinum Sjónarhorni í kvöld mun Þórdís Lóa Þórhallsdóttir fara yfir helstu flækjustig líknarmála hér á landi. Hvað er og þýðir líkn? Hvernig eru lögin um líffæragjafir og geta allir gefið líffæri?


Meðal viðmælanda í kvöld er Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri Sóltúns, en hún segir að líkt og fæðingin, þá sé dauðinn sérstök stund á æviskeiði einstaklinga, bæði fyrir þann sem er að kveðja og fjölskyldu hans. Ættingjar og vinir geti átt einstaka kveðjustund saman sem þeir búi að alla ævi.


Ekki missa af glænýjum Sjónarhornsþætti í kvöld kl. 21:00 á Hringbraut í umsjá Þórdísar Lóu, en hún er nýgengin til liðs við Hringbraut með fjölþætta reynslu sína úr atvinnulífinu, en hún gegnir nú formennsku í Félagi kvenna í atvinnulífinu.