Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann glæsilegan sigur á Hollendingum á þjóðarleikvangi þessarar einnar sterkustu knattspyrnuþjóðar heims í gærkvöld. Samheldni íslenska liðsins var einstök.
Íslenska liðið mætti strax sterkt til leiks og var augljóst á leik þess að allir leikmenn liðsins ætluðu að leggja sig alla fram í leikinn og sýna andstæðingum hæfilega mikla virðingu. Það fór enda svo að íslenska liðið átti fyrsta dauðafæri leiksins þegar Jóhann Berg Guðmundsson gaf fasta sendingu inn að marklínu á Jón Daða Böðvarsson sem var hársbreidd frá því að koma boltanum í markið.
Hollendingar áttu engin raunveruleg dauðafæri í leiknum, voru um tíma meira með boltann en sköpuðu sér ekki mjög hættuleg færi nema ef vera kynni með föstum sendingum utan af kanti sem rötuðu framhjá marki Íslendinga.
Arien Robben, fyrirliði Hollands og einn skæðasti sóknarmaður heims fór meiddur af leikvelli í fyrri hálfleik og þar með riðlaðist sóknarleikur heimamanna. Einn þeirra var svo rekinn af leikvelli eftir að hafa slegið til Kolbeins Sigþórssonar sem lá í jörðinni eftir baráttu við leikmanninn.
Íslenska liðið stóð vaktina með þvílíkum sóma í seinni hálfleik að sjaldan eða aldrei hefur sést til jafn sterks samleiks og sigurvilja þess í seinni hálfleik.
Birkir Bjarnason fékk réttilega dæmda vítaspyrnu á 51. mínútu í seinni hálfleik og úr henni skoraði Gylfi Sigurðsson með föstu skoti í vinstra hornið sem markmaður Hollendinga hélt ekki.
Hannes Halldórsson var besti leikmaður íslenska liðsins, varði oft og tíðum vel og var einstaklega vel staðsettur í fjölda sókna Hollendinga.
Og þá er ónefnd Tólfan sem aldrei hefur leikið betur.
Ísland þarf nú aðeins sigur gegn Kasakstan á sunnudag til að tryggja sér þátttöku í lokakeppni EM í Frakklandi 2016.