Das er líka í færeyjum

Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld, er þekkt slagorð Happdrættis DAS. Sigurður Ágúst Sigurðsson, forstjóri DAS, er gestur Jóns G. í kvöld. Þar kemur fram að Hrafnista er með 99 rúma hjúkrunarheimili í byggingu við Sléttuveg. Þeir Jón G. fara yfir hið þekkta slagorð DAS og rifja upp gömlu DAS-húsin og bílana sem voru í verðlaun á árum áður. Fram kemur að DAS fór í útrás árið 1995 til Færeyja og happdrættið þar gengur vel. Velta Happdrættis DAS var um 450 milljónir kr. á síðasta ári og nam hagnaðurinn um 160 milljónum króna.