Danny blind: ósanngjörn úrslit!

Danny Blind, þjálfari Hollands sem stýrði liðinu í fyrsta sinn í gærkvöld, segir sigur Íslands ekki hafa verið sanngjarnan. Ástæðan sé sú að leikurinn varð ójafn eftir að þeir misstu mann af velli en hann viðurkennir reyndar að það hafi verið þeirra eigin sök.
 

\"Martins Indi [innsk. leikmaður Hollands sem fékk rautt spjald] gerði heimskuleg mistök. Hann á að vita að hann býður upp á það að fá rautt spjald þegar hann slær annan leikmann. Eftir það var þetta erfiður leikur og við reyndum að ná stjórn á leiknum bara með einn mann frammi og tvær fjögurra manna línur. Svo gerðum við mistökin sem leiddu til vítisins og þá var á brattann að sækja. Í lokin sköpuðum við okkur nokkur smá færi og áttum möguleika á að jafna,“ sagði Blind að leik loknum við fréttamann RÚV á Amsterdam Arena vellinum þar sem leikurinn fór fram. 

Annað hljóð var í einum besta leikmanni Íslands, Hannesi Þór Halldórssyni markmanni sem stóð sína vakt með fullkomnum sóma: \"Ólýsanlegt bara, það er ekkert hægt að lýsa því, þetta verður ekkert betra en þetta,” sagði hann við fréttamann RÚV um tilfinningar sínar eftir leikinn gegn Hollandi í Amsterdam í kvöld: \"Sigurtilfinning í fótboltaleik er svona það besta sem til er eiginlega og þegar það er á svona stundu, úti á móti Hollandi þar sem við förum langt með að tryggja okkur farseðilinn til Frakklands fyrir framan 3000 brjálaða Íslendinga, þetta er náttúrulega bara once in a lifetime og bara ótrúleg stund.”

Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var að vonum kátur eftir leikinn í Hollandi í gærkvöld í undankeppni EM og ánægður með sitt lið sem og þá fjölmörgu íslensku stuðningsmenn sem mættu á leikinn til að hvetja íslenska liðið: \"Við spiluðum þennan leik hugrakkir, vorum kannski aðeins og passívir í lokin, það er kannski það fyrsta sem flýgur í gegnum hugann. Og svo þessi hópur af Íslendingum sem er að koma hingað og styðja okkur. Sem betur fer, þegar það er að koma hérna um eitt prósent af þjóðinni, þá gátum við gefið þeim sigur. Ég ætla bara að vona að þeir komist heim því við þurfum á stuðningi að halda á móti Kasakstan og þeir verða að passa röddina á sér,” sagði hann á RÚV í gærkvöld