Danir setja umhverfisvænt heimsmet

Þeir Íslendingar sem fljúga til Kaupmannahafnar taka vel eftir þeirri uppbyggingu sem orðið hefur í vindraforkuframleiðslu Dana þegar vélar lækka flugið og styttist í lendingu á Kastrup. Háar vindmyllur eru víða nokkuð áberandi. Er svo komið að Danir eru heimsmethafar í beislun og nýtingu vindorku.

Samkvæmt Guardian leiddu danskir vindar (árið 2015 var óvenju vindasamt þar um slóðir) til þess að raforka frá vindmyllum dugði til að uppfylla 42% af orkuþörf Dana. Ekkert annað ríki hefur náð slíkum árangri.

Hér á landi hafa fyrstu skref verið stigin í átt að vindorku, enda er Ísland langt í frá að vera land lognsins. Margt gætum við þó lært af Dönum í þessum efnum.

Skiptar skoðanir voru meðal Dana um ásýndaráhrif in af vindmyllum sem sannarlega fanga augað þegar Danir mörkuðu sína braut. Árangurinn talar þó sínu máli og er að mestu sátt um það umhverfisvæna skref sem þeir hafa stigið.

Á Jótlandi og Fjóni tókst svo vel til 60 daga af síðasta ári að þá var framleitt meira af vindorku en þurfti til nýtingar staðbundið.