Danir reyndu ítrekað að selja ísland

\"Það hafa fáir gert sér grein fyrir því að Danakonungar reyndu að minnsta kosti fjórum sinnum að selja Ísland, það voru gerðar þrjár skýrslur í Bretlandi um að hertaka Ísland og það var gerð ein skýrsla í Bandaríkjunum um að kaupa Ísland og í móðuharðindunum var talað um að rýma Ísland.\"

Þetta kom fram í máli prófessors Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í fyrirlestri sem hann hélt á Þjóðarspeglinum, kynningu á ransóknum á félagsvísindasviði Háskóla Íslands á föstudag.

Morgunblaðið greinir frá fyrirlestrinum í helgarblaði sínu og hefur þar eftir Hannesi að líklega hefði íslensk tunga tapast hefði landið heyrt undir Breta fremur en Dani. Vera landsins undir veiku stórveldi hefði í raun verndað tungumálið.