Það gengur á með ásökunum, gagnásökunum og málshöfðunum milli lögmanna Stormy Daniels og Donalds Trumps forseta Bandaríkjanna.
Michael Avenatti, lögmaður Daniels höfðaði meiðyrðamál í gær gegn Michael Cohen, lögmanni Trumps fyrir að segja hana ljúga í viðtalinu sem birtist við hana í 60 minutes þætti CBS sjónvarpsstöðvarinnar á sunnudag.
Bæði lögmenn Trumps og fréttafulltrúi Hvíta hússins, Raj Shah, þrættu fyrir staðhæfingar Daniels í viðtalinu um að henni hefði verið hótað líkamsmeiðingum ef hún segði frá sambandi þeirra Trumps.
„Forsetinn telur að engin af fullyrðingum Daniels í gærkvöldi í viðtalinu sé rétt,“ sagði Shah.
Í yfirlýsingu Avenattis í gær er því jafnframt haldið fram að 130 þúsund dala greiðsla sem Daniels fékk frá Cohen hafi verið brot á kosningalöggjöfinni, því framboð Trumps hafi ekki talið greiðsluna fram sem kostnað við framboðið.