Lýsir óhugnanlegu atviki á heimili sínu: „Síðan heyrir maður bara hljóð eins og hurðin sé hreinlega sprengd upp“

Daníel Daníelsson, sagnfræðingur og ritlistarnemi lýsir óhugnalegu atviki sem átti sér stað á heimili hans í nýlegri twitter færslu en hann býr ásamt kærustu sinni og nýfæddu barni í blokk nálægt Síðumúlanum.

Hann segir að klukkan níu um morguninn í gær hafi maður byrjað að dingla á bjöllur í stigaganginum til þess að spyrja um ákveðinn íbúa.

Daníel hafi tjáð honum að enginn slíkur aðili byggi í hans íbúð en á endanum hafi maðurinn komist inn.

„Það er einhver á efri hæðinni sem hefur skapað þessa þörf að einhver dingli á hérna á allskyns íbúðum og sé á endanum hleypt inn af einhverjum hér í stigaganginum en ég hef ekki hugmynd um hver gerði það,“ sagði Daníel en maðurinn hafi snögglega gengið upp stigaganginn.

„Síðan verða einhver orðaskipti á ganginum, en ég bý nokkrum hæðum fyrir neðan svo ég heyri illa hvað er í gangi. Ég er innmúraður í minni íbúð með hvítvoðunginn,“ en Daníel og kærasta hans eignuðust barn fyrir einungis sex dögum síðan.

„Síðan heyrir maður bara hljóð eins og hurðin sé hreinlega sprengd upp, það verður þarna svaka hvellur. Það koma allir fram á gang og svo sé ég mann ganga út í bláan jeppling á endurskoðun,“ segi hann en Daníel hafi ekki haft frekari afskipti af manninum eða nágrönnum sínum.

„Þetta var bara frekar venjulegur maður, í lopapeysu og gallabuxum, leit út fyrir að vera bara einhver svona iðnaðarpabbi,“ segi Daníel sem vill brýna fyrir fólki að hleypa ekki hverjum sem er inn á stigaganginn.

„Það er mikilvægt að mínu mati að það fari inn í umræðuna að fólk sé ekki að hleypa hverjum sem er inn á stigaganginn,“ segir Daníel en þetta sé ekki í fyrsta skipti sem eitthvað þessu líkt gerist.

„það var brotist inn í geymslu hjá okkur í kjallaranum en kjallarinn er tengdur þremur stigagöngum án blokkeringar, þetta er bara flæði. Þú getur labbað inn í hinum enda blokkarinnar og haft aðgang að okkar.“

Daníel segir að þar sem hann búi í gamalli blokk sé ekkert myndavélakerfi til staðar. „Við erum að fara í dýrar framkvæmdir svo ég held að það verði ekkert rosalega vinsælt að bæta við dýru myndavélakerfi og dyrasíma ofan í þann kostnað. En það er eitthvað sem raunverulega þarf að gera,“ segir Daníel.