Grunur leikur á um að maðurinn sem fannst látinn í gær í Vogahverfi í Reykjavík hafi látist af völdum barsmíða og að barefli hafi verið notað.
Lögreglu barst tilkynning um andlátið um klukkan 19.30 í gærkvöldi en talið er að maðurinn hafi látist skömmu fyrir það.
Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn vegna málsins en samkvæmt RÚV er maðurinn fæddur 2001 en andlátið er rannsakað sem morð.