Þá kemur einnig fram að sálfræðingar læri um heilann í sex ár og komist svo að því að þekkingin nýtist takmark við meðferð sálrænna vandamála. Aðaltæki þeirra í dag kenni fólki að lifa með vandanum en spurt er hvort ekki sé betra að geta fundið og leyst rót vandans.
Hrund Þrándardóttir formaður Sálfræðingafélags Íslands segir við RÚV að þarna sé verið að auglýsa stutt nám á veikum grunni: \"Þeir þurfa að upphefja sig með því að tala niður bæði nám og störf sálfræðinga sem þeir gera í greininni. Fyrst og fremst eru það rangfærslur og bull sem fram koma.“ Þar nefnir Hrund sérstaklega þá fullyrðingu að nám sálfræðinga nýtist illa við meðferð sálrænna vandamála. Með því sé vegið bæði að námi þeirra og störfum.
Sálfræðingafélagið hyggst gera embætti landlæknis viðvart vegna málsins. Hlutverk þess sé að sinna eftirliti með heilbrigðisstarfsfólki: \"Dáleiðsluskólinn fellur ekki þar undir. En þegar verið er að draga heilbrigðisstéttir niður í svaðið til að upphefja einhverja aðra aðferð finnst okkur full ástæða til að benda embættinu á það,“ segir Hrund við vefinn.
Umræða hefur skapast um þetta á Facebooksíðu Sálfræðingafélagsins. Þar segir Ingibergur Þorkelsson skólastjóri Dáleiðsluskólans að þar sé ekki verið að fjalla sérsaklega um sálfræðinga heldur aðeins benda þeim á öflugt tæki sem litið sé framhjá í dag. Aðrar stéttir sem fjallað sé um hafi ekki brugðist við orðum hans.