Dalai lama: bænin ekki lausnin

Dalai Lama hefur tjáð sig um hryðjuverkaárásárirnar í París. Gríðarlegur fjöldi friðelskandi fólks um allan heim sperrir eyrun og deilir hverju orði í hvert skipti sem mannvinurinn opnar munninn. Leiðtoginn hefur oft rætt nytsemi innri friðar við lausnir á álitamálum, en hvorki hugleiðsla né bænir einar og sér duga nú til að leysa alheimskrísuna sem hryðjuverkaógnin er orðin nú að mati Dalai Lama.

„We cannot solve this problem only through prayers. I am a Buddhist and I believe in praying. But humans have created this problem, and now we are asking God to solve it. It is illogical. God would say, solve it yourself,  because you created it in the first place,“ segir Dalai Lama.

Snara mætti orðum hins andlega leiðtoga þannig að vandamálið verði ekki leyst með bænum einum og saman. Þótt hann sé búddisti sjálfur og trúi á mátt bænarinnar hafi mennirnir sjálfir skapað þennan vanda. Því sé órökrétt að biðja Guð að leysa málið. „Guð myndi segja: Leysið vandann sjálfir, því það voruð þið sem sköpuðuð hann.“

Leikur vart vafi á að með þessum orðum er Dalai Lama að vísa til þeirra hagsmunatengdu hernaðar- og yfirráðastefnu sem Vesturlönd hafa rekið í miðausturlöndum og víðar með þeim afleiðingum að ríki hafa verið arðrænd. Vestrænir leiðtogar hafa stutt við illa einræðisherra sem hafa verið leiðitamir pólitík vesturveldanna og innrásin í Írak er talin hafa kynt jög undir andúð tiltekinna hópa á yfirráðahyggju vesturveldanna.

Lessa má meira um málið hér.