Dagur vinsæll i vestri, eyþór í austri

Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, er sá sem flest­ir íbú­ar Reykja­vík­ur vilja sjá sem borg­ar­stjóra eft­ir kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Hann og Eyþór Arn­alds, leiðtogi Sjálf­stæðismanna, eru þeir tveir sem flest­ir vilja sjá sem borg­ar­stjóra, en tæp­lega þriðjung­ur kjós­enda er enn óviss hvern þeir vilja helst sjá í embætt­inu.

Nokk­ur mun­ur er á því hvar Dag­ur og Eyþór sækja vin­sæld­ir sín­ar, en Dag­ur nýt­ur um­tals­vert meiri vin­sælda í öll­um hverf­um borg­ar­inn­ar vest­an við Elliðaárn­ar meðan þeir eru hníf­jafn­ir í Breiðholti. Dag­ur er ör­lítið ofar í Árbæ, en fleiri íbú­ar í Grafar­vogi, Grafar­holti og Úlfarsár­dal telja Eyþór hins veg­ar væn­legri kost sem borg­ar­stjóra.

Þetta er meðal þess sem kem­ur fram í niður­stöðum nýrr­ar könn­un­ar Fé­lags­vís­inda­stofn­un­ar Há­skóla Íslands sem unn­in var fyr­ir Morg­un­blaðið og mbl.is og birt­ist nú um helgina. Þar kemur fram að auki að Samfylkingin leiðir keppnina um 23 borgarstjórnarsæti í vor, fengi 8 fulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn 7, VG 3, Píratar 2, Viðreisn 2 og Miðflokkurinn 1. Meirihlutinn í borginni heldur því velli með samtals 13 borgarfulltrúa.