Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag vera ranga og villandi. „Er ekki dálítið merkilegt að fjölmiðlar skuli enn taka hluti hráa upp eftir Vigdísi H. og Eyþóri Arnalds? Langar að fara aðeins í gegnum dæmi dagsins þar sem Morgunblaðinu tekst að hafa tvær fyrirsagnir rangar - á forsíðu og síðu 2 og flytja frétt sem er bæði villandi og röng,“ segir Dagur á Facebook.
„Málið snýst sem sagt um gerð leikskóla við Kleppsveg þar sem hefur verið niðurníddur hverfiskjarni undanfarin ár. Þar er sagt í Mogga að milljarð kosti að breyfa "kynlífstækjaverslun í leikskóla" - og að kostnaðurinn sé kominn langt fram úr áætlun.
Bæði er rangt en þetta er út af fyrir sig skemmtilegt dæmi um afflutta frétt.“
Dagur segir að borgin hafi líka keypt húsið við hliðina á Adam & Evu þar sem hefur verið arkitektastofa, ásamt kjallara sem þarna er undir og viðkomandi lóðir.
„Áætlunin sem var verið að leggja fyrir borgarráð er endanleg kostnaðaráætlun (svo kölluð kostnaðaráætlun II) þar sem tekið hefur verið mið af ástandi húsanna og kjallarans og lagt mat á kostnað viðkomandi verkefnis í heild. Endurgerð á húsinu sem hýsti Adam og Evu er aðeins hluti verkefnisins,“ segir Dagur. „Fyrirsögnin inni í blaðinu er líka röng. Þar er sagt að áætlaður kostnaður sé "langt fram úr áætlun". Hið rétta er að í borgarráði á fimmtudag var einmitt verið að leggja fram endanlega áætlun vegna verksins sem ekki er hafið.“
Dagur segir að meirihlutinn standi heilshugar á bak við verkefnið. „Gömul hús verða endurnýtt og ganga í endurnýjun lífdaga í stað þess að vera rifin. Hverfið fær betri ásýnd og niðurlægingarskeiði hins gamla hverfiskjarna lýkur,“ segir Dagur. „Meirihlutinn stendur því heilshugar með þessu verkefnið - þótt það kosti vissulega sitt - og nú eiga að liggja fyrir skýrar og áreiðanlegar áætlanir sem hægt er að byggja á til að ákveða að ráðast í verkið.“
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna, svarar fullum hálsi á Facebook. „Það er sérlega óheppilegt hjá Degi B. Eggertssyni að reyna að skjóta sendiboðann eins og hann kýs að gera í dag á facebook síðu sinni. Morgunblaðið fjallaði um málið í frétt í morgun og ræddi við oddvita stærsta flokksins í borgarstjórn. Dagur talar hortulega og kvartar yfir því að rætt sé við Vigdísi Hauksdóttur. Sem á alls ekki við í þessu tilfelli,“ segir Eyþór. „Reynir svo að gera Morgunblaðið að blóraböggli. Skjóta sendiboðann.“