Dagur þorsksins er í dag því segja má að fiskurinn eigi stóran sess í íslensku samfélagi og viðskiptaheimi.
Í gegnum tíðina hefur þorskurinn alltaf nýst okkur betur og betur en fólk og fyrirtæki virðast hafa ótakmarkaðar hugmyndir og útfærslur á nýtingu þorskins.
Snædís Snorra kíkti við í húsi Sjávarklassans og skoðaði þar hinar ýmsu vörur sem unnar eru úr þorskinum en þar má nefna collagen duft, lyklakippur, krem, áburði, handtöskur og hinar sígildu fiskibollur. Þór Sigfússon stofnandi og stjórnarformaður Sjávarklassans segir frá hvers vegna þorskurinn fær sinn eigin hátíðardag í þættinum 21 í kvöld á Hringbraut.