Dagur snuprar fréttablaðið

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur er heldur ómyrkur í máli í garð Fréttablaðsins á fésbók sinni í dag vegna framsetnigar blaðsins á lýðhylli hans, en þar er lögð höfuðáhersla á að óvinsældir Dags mælist 43 prósent.

Dagur segir að það sé aðeins minnst á það í „framhjáhlaupi“ að 45 prósent þeirra sem afstöðu tóku, vilja hann áfram sem næsta borgarstjóra: \"Það verður að teljast nokkuð magnað fréttamat hjá Fréttablaðinu að slá því upp að kjósendur Sjálfstæðisflokks og Vigdísar Hauksdóttur séu ekki ánægðir með mig í embætti en geta þess aðeins í framhjáhlaupi að 45% borgarbúa segist vilja að ég verði næsti borgarstjóri í Reykjavík. Það er ekki aðeins afgerandi mesti stuðningur nokkurs borgarstjóraefnis heldur jafnframt um 50% meiri stuðningur en mælist við Samfylkinguna.“

Dagur segir blaðið hvergi minnast á kröftuga viðspyrnu Samfylkingarinnar í borginni frá haustdögum, heldur vísi iðulega til úrslita síðustu kosninga: \"Samfylkingin hefur reyndar meira en tvöfaldað fylgi sitt frá því í haust, skv. könnunum Fréttablaðsins í vetur en það hefur reyndar heldur ekki komið fram í blaðinu sem vísar þess í stað iðulega til úrslita síðustu kosninga. Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með niðurstöður þessara kannana og innilega þakklátur fyrir stuðninginn. Það er frábært að hafa svona byr í seglum þrátt fyrir þá ótrúlegu neikvæðni sem haldið er að fólki á síðum Morgunblaðsins – já, og annarra.“

Loks er borgarstjórinn ekki par ánægður með val blaðsins á myndinni af honum sem fylgir fréttinni en þar líti út eins og hann hafi misst ástvin: \"Og svo það sé nefnt þá að það hreint algjör óþarfi af Fréttablaðinu að birta af mér mynd sem lítur út einsog ég hafi misst náin ástvin. Ég er í toppformi og góðu stuði en sýnist á öllum sólarmerkjum að þið, góðu vinir, og annað gott fólk þurfið að leggjast á árarnar með okkur og tala okkar máli.“