Sjómannadagurinn er nú haldinn hátíðlegur um allt land, en víða úti á landi er hann helsti hátíðisdagurinn sem haldinn er hvert ár. Búast má við fjölmenni við hátíðarhöldin hringinn í kringum landið í dag.
Sjómannadagurinn var fyrst haldinn hér á landi árið 1938 og hefur æ síðan verið haldinn fyrsta sunnudag í júnímánuði með margvíslegum uppákomum þar sem sjómannadagsmessa og kappróðrar hafa sett sterkan svip á bæjarlífið um allt land.
Guðmundur hallvarðsson formaður Sjómannadagsráðs segir daginn enn halda fullu gildi sínu og almenningur beri mikla virðingu fyrir sögu hans og mikilvægi fyrir sjómannastéttina í landinu.
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra er aðalræðumaður á sjómannadagshátíðinni í Reykjavík í dag, en meðal annarra ræðumanna þar er Gísli Gíslason forstjóri Faxaflóahafna.