Dagur: bjart fram undan hjá íslandi

Dagur Sigurðarson landsliðsþjálfari Þýskalands verður viðmælandi Loga og Krissa í kvöld í Olísdeildinni á Hringbraut kl. 20.00 og 22.00.

Rætt verður við Dag um það afrek að gera Þjóðverja að heimsmeisturum fyrir skemmstu. Fullyrða má að sól Dags hafi ekki skinið skærar sem þjálfara. Hefur frammistaða hans með þýska landsliðinu verið Íslandi góð landkynning. Í viðtalinu við Krissa og Loga kemur fram  að Dagur telur bjart fram undan hjá íslenska landsliðinu.

Framundan hjá Degi eru ólympíuleikar og verður undirbúningur Þjóðverja til umræðu.