Degi Sigurðssyni, landsliðsþjálfara Þýskalands í handknattleik tókst það óvænta, að leiða lið sitt til sigurs á Evrópumeistaramótinu í handknattleik á sjöunda tímanum í gærkvöld.
Sigur Þjóðverja, sem voru án fjögurra fastamanna, var fyrst og síðast varnarsigur, en Spánverjar, sem fyrirfram voru taldir sigurstranglegri, komust hvergi gegn ógnarsterkri vörn þýskra sem spilaði eins og einn maður framan við magnaða markverði sína.
Seinni háalfleikurinn var aldrei spennandi og Þjóðverjar sigruðu að lokum með átta marka mun, 24:17.
Dagur er annar Íslendingurinn sem leiðir landslið til sigurs á svo sterku móti, en Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta hefur gert það þrívegis.
Króatar höfnuðu í þriðja sæti á mótinu eftir sigur á Norðmönnum.