Dagur og félagar ráði ekki við verkefnið

\"Það er staðreynd að rekstur borgarinnar gengur illa og áætlanir ganga ekki upp. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var neikvæð um 4.980 milljónir króna, en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 7.392 milljónir króna sem var 12.371 mkr eða 167% undir áætlun. Afkoma samstæðunnar er 16.085 mkr verri í ár heldur en hún var árið 2014,\" segir Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks og frulgvallarvina í minnihlutanum í borgarstjórn Reykjavíkur í samtali við Hringbraut um sláandi hallarekstur Reykjavíkurborgar.

\"Tekjur borgarinnar duga ekki fyrir útgjöldum þó svo að útsvar sé í toppi og skatttekjur hafi verið hærri en áætlað var. Þannig var rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs neikvæð um 18.252 mkr en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 5.894 mkr og var niðurstaðan því um 12.358 mkr lakari en áætlað var,\" segir Guðfinna.

Hún segir stöðuna alvarlega og ljóst sé að Dagur B. Eggertsson og hans lið í meirihlutanum ráði ekki við verkefnið.

\"Það er mjög alvarleg staðreynd að aðalsjóður skuli vera rekinn með svo miklu tapi sem sýnir að meirihlutinn ræður ekki við verkefnið og bitnar það á grunnþjónustu borgarinnar. Biðlistar eru langir eftir félagslegu leiguhúsnæði, sérfræðiþjónustu skóla og stuðningsþjónustu. Þá er viðhaldi á eignum borgarinnar ekki sinnt sem skyldi.\"