Dagur mælist vinsælli en eyþór

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík hefur betur en keppinautur hans, Eyþór Arnalds, leiðtogi sjálfstæðismanna í borginni í vinsældarkosningu Fréttablaðsins sem birt er í dag.

Flestir, ea 19 prósent, nefndu Dag þegar þeir voru spurðir hvern þeir vildu sjá sem næsta borgarstjóra. Næstflestir, eða 16 prósent, völdu aftur á móti Eyþór.

Eins fram kom í gær mælist Sjálfstæðisflokkurinn með msta fylgið í borginni sem stendur, 35 prósent, en Samfylkingin kemur á hæla hans með ríf 27 prósent.