Dagur kári formaður verkefnishóps um kvikmyndamál

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur skipað verkefnishóp til að vinna að gerð stefnumótunar í kvikmyndamálum sem á að gilda frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2030. Dagur Kári, kvikmyndaleikstjóri og handritshöfundur, hefur verið skipaður formaður hópsins. Klapptré greinir frá.

Verður þetta í fyrsta sinn sem stjórnvöld móta heildstæða stefnu og aðgerðaáætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvikmynda í menningu þjóðarinnar, menntun í kvikmyndagerð á öllum skólastigum, miðlun íslensks kvikmyndaefnis og stuðning við framleiðslu kvikmynda.

Mælst er til þess að verkefnishópurinn ljúki störfum og skili tillögum sínum fyrir 31. júní 2019.

Verkefnishópurinn er þannig skipaður:

Dagur Kári Pétursson formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra, formaður,

Grímar Jónsson framleiðandi, varaformaður,

Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður,

Áslaug María Friðriksdóttir formaður Kvikmyndaráðs,

Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri,

Einar Karl Birgisson framkvæmdastjóri,

Þorgeir Ólafsson sérfræðingur á skrifstofu menningarmála,

Baldur Sigmundsson sérfræðingur í atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti,

Kristinn Þórðarson sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins.