Dagur íhugi að segja af sér

 

Pólitískum afleiðingum sniðgöngumálsins sem tengist Ísrael virðist hvergi lokið í Reykjavík.

Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, segir að sjálfstæðismenn muni fara fram á að borgarstjóri íhugi stöðu sína vegna sniðgöngumálsins. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Sjálfur hefur Dagur sagt að hann hafi ekki íhugað að segja af sér embætti vegna sniðgönguklúðursins.