Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri sér ekki fyrir sér að hann muni segja af sér embættinu vegna braggamálsins svokallaða. Á endanum sé það þó ekki bara hans að svara þeirri spurningu.
Þetta kemur fram í þættinum 21 í kvöld í ítarlegu viðtali Þórðar Snæs Júlíussonar við Dag og lesa má í lengri frétt á Kjarnanum hér.
Hann segir að Morgunblaðsarmur Sjálfstæðisflokksins eins og hann nefnir beri ábyrgð á því að raddir um afsögn hans sé hávær.
Framkvæmdin um endurgerð braggans og tengdra bygginga er enn til skoðunar hjá innri endurskoðun Reykjavíkurborgar.
Dagur hefur verið í veikindaleyfi undanfarnar vikur og á meðan geysuðu eldar í Ráðhúsinu. Hann snéri aftur til starfa í byrjun vikunnar og tjáir sig nú fyrst um þetta mál sem hefur vakið upp kröfur um afsögn hans. Dagur segir í viðtalinu að stanslausar kröfur um afsögn sé nýr tónn í borgarstjórn. „Ég kveinka mér ekkert undan því að mín ábyrgð eða annarra verði rædd þegar niðurstöðurnar liggja fyrir. En mér finnst þetta dæmi um mál sem eru mikilvæg, alvarleg, fara svolítið fljótt ofan í pólitískar skotgrafir áður en að öll kurl eru komin til grafar“.